1. gr.
Í stað orðsins "dómsmálaráðherra" í 1. málslið 3. gr. og 1. mgr. og 3. mgr. 15. gr. kemur: innanríkisráðherra.
2. gr.
Við 4. mgr. 15. gr. bætist nýr málsliður: Ríkislögreglustjóri staðfestir skipurit lögregluembætta, þar með talið Lögregluskóla ríkisins.
3. gr.
Í stað 5. mgr. 15. gr. kemur ný málsgrein: Ríkislögreglustjóri sendir staðfest skipurit ásamt greinargerð sinni til innanríkisráðherra til upplýsinga.
4. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90 13. júní 1996, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.
Innanríkisráðuneytinu, 1. nóvember 2013.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.