Velferðarráðuneyti

550/2017

Reglugerð um slysatryggingu við heimilisstörf.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um slysatryggingu við heimilisstörf samkvæmt 8. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga nr. 45/2015.

Sá sem fyllir út viðeigandi reit á skattframtali í byrjun árs telst slysatryggður við heimilisstörf frá 1. júlí það ár til 30. júní árið eftir, enda hafi skattframtalinu verið skilað til skattyfirvalda innan lögbundins frests.

Ekki er unnt að óska eftir slysatryggingu við heimilisstörf eftir að skattyfirvöld hafa móttekið skattskýrslu.

2. gr.

Með slysi er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans.

3. gr.

Slysatryggingin nær til heimilisstarfa, sbr. 4. gr., sem innt eru af hendi hér á landi á heimili hins tryggða og í sumarbústað þar sem hinn tryggði dvelur. Sama á við um heimilisstörf sem stunduð eru í bílskúr og geymslum, afmörkuðum garði og í innkeyrslu umhverfis heimili eða sumarbústað hins tryggða.

4. gr.

Til heimilisstarfa í reglugerð þessari teljast m.a. eftirtalin störf, séu þau ekki liður í atvinnustarfsemi hins tryggða.

  1. Hefðbundin heimilisstörf, svo sem matseld og þrif.
  2. Umönnun sjúkra, aldraðra og barna.
  3. Viðhaldsverkefni og viðgerðir.
  4. Hefðbundin garðyrkjustörf.

5. gr.

Undanskilin slysatryggingu við heimilisstörf eru m.a.:

  1. Slys sem hinn tryggði verður fyrir við ýmsar persónulegar daglegar athafnir sem ekki teljast til hefðbundinna heimilisstarfa, svo sem að klæða sig, baða og borða.
  2. Slys sem hinn tryggði verður fyrir á ferðalögum, svo sem í tjaldi, hjólhýsi og á hóteli.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 8. gr. og 23. gr. laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 670/2012 um slysatryggingar við heimilisstörf.

Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2017.

Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica