Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1227/2007

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2008. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félags­lega aðstoð, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2008:

  1. Í júlí 2008 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
  2. Í desember 2008 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almanna­tryggingar, með síðari breytingu, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, öðlast gildi 1. janúar 2008. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 1020/2005 um eingreiðslu til elli- og örorkulífeyrisþega í desember 2005, reglugerð nr. 640/2006 um sérstaka viðbótarfjárhæð til elli- og örorkulífeyrisþega sem greiðist af Tryggingastofnun ríkisins á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember 2006 og reglugerð nr. 1075/2006 um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2007.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2007.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Ragnheiður Haraldsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica