Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

46/1987

Reglugerð um starfsheiti og starfsréttindi næringarfræðinga - Brottfallin

1. gr.

Rétt til að kalla sig næringarfræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra

 

2. gr.

Leyfi samkvæmt 1. gr. skal veita þeim íslenskum ríkisborgurum sem lokið hafa B.S. prófi eða sambærilegu háskólaprófi í næringarfræðum og þeim sem lokið hafa hærri háskólagráðu við framhaldsnám í næringarfræðum, að fenginni umsögn Matvæla- og næringarfræðingafélags Íslands og landlæknis.

 

3. gr.

Næringarfræðingar starfa að næringarfræði við heilbrigðisstofnanir, kennslustofnanir heilbrigðisstétta og matvælastofnanir.

 

4. gr.

Næringarfræðingi ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar, er varða starfssvið hans.

5. gr.

Nú uppfyllir maður skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur ekki íslenskt ríkisfang, og er þá ráðherra heimilt að veita honum ótakmarkað eða tímabundið leyfi, enda hafi umsagnaraðilar samkvæmt 2. gr. mælt með leyfisveitingunni.

 

6. gr.

Næringarfræðingar er starfa við heilbrigðisstofnanir eru bundnir þagnarskyldu um alla vitneskju eða grun sem þeir fá í starfi sínu um sjúkdóma eða önnur mál sem leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins og helst þagnarskyldan þótt viðkomandi láti af störfum.

 

7. gr.

Um næringarfræðinga er starfa á heilbrigðisstofnun gilda að öðru leyti og eftir því sem við getur átt reglur læknalaga, nr. 80 23. júní 1969, með áorðnum breytingum. Reglur læknalaga gilda m.a. um viðurlög við brotum í starfi næringarfræðinga, um sviptingu löggildingar þeirra og endurveitingu starfsréttinda.

 

8. gr.

Með má1 út of brotum gegn reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

 

9. gr.

Ráðherra getur í auglýsingu sett nánari ákvæði um framkvæmd reglugerðar þessarar.

10. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta og öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 29. janúar 1987.

Ragnhildur Helgadóttir.

Ingimar Sigurðsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica