REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 47/1990
um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.
1. gr.
Fjárhæðir, sem nefndar eru í reglugerðinni skulu breytast þannig:
Í 5. gr. komi kr. 26 308 í stað kr. 25 542.
Í 6. gr. komi kr. 26 308 í stað kr. 25 542.
Í 10. gr. komi kr. 21 136 í stað kr. 20 520.
Í 14. gr. komi kr. 21 136 í stað kr. 20 520.
2. gr.
1. málsgr. 10. gr. hljóði svo:
Nú hefur langlegusjúklingur eigin tekjur sem að frádregnum staðgreiðsluskatti eru hærri en kr. 21 136 á mánuði skal hann þá með þeim tekjum sem umfram eru taka þátt í dvalarkostnaði frá þeim tíma sem bætur almannatrygginga falla niður. Þó skal hann í hverjum mánuði aldrei greiða hærri fjárhæð en sem nemur dvalarkostnaði í þjónustuhúsnæði aldraðra eins og hann er ákveðinn af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sbr. 3. gr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 30. sbr. 27. gr. laga um málefni aldraðra nr. 82/ 1989 með síðari breytingu, öðlast gildi 1. júlí 1993.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 7. júní 1993.
Sighvatur Björgvinsson.
Páll Sigurðsson.