Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1073/2006

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar. - Brottfallin

1. gr.

Upphæðir bóta og greiðslur skv. 59. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og upphæðir samkvæmt lögum nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 6,0% frá því sem þær voru í desember 2006. Ákvæði 1. málsl. tekur ekki til bóta sem hækka samkvæmt reglugerð nr. 638/2006 og tekjutryggingar skv. 17. gr. laga nr. 117/1993.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr, laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1115/2005 um hækkun bóta almannatrygginga.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 14. desember 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica