Fjármálaráðuneyti

85/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 63/1994, um frjálsa skráningu vegna fólksflutninga á milli landa, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Þeir sem í atvinnuskyni hafa með höndum reglubundna fólksflutninga milli landa geta sótt um frjálsa skráningu til skattstjóra. Heimild til skráningar samkvæmt reglugerð þessari nær til flugfélaga, skipafélaga og annarra sem halda uppi reglubundnum fólksflutningum á milli landa. Með reglubundnum fólksflutningum er átt við flug og siglingar með farþega gegn gjaldi samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun um fastar og tíðar ferðir.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi frá og með 1. janúar 2003. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 786/2003, um breytingu á reglugerð nr. 63/1994, um frjálsa skráningu vegna fólksflutninga á milli landa.


Fjármálaráðuneytinu, 23. janúar 2004.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Elmar Hallgríms.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica