Viðskiptaráðuneyti

1049/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um tilkynningu og birtingu ákvarðana um endurskipulagningu fjárhags og slit lánastofnana, nr. 872/2006. - Brottfallin

1. gr.

2. málsl. 1. mgr. 3. gr. orðast svo:

Slík tilkynning telst fullnægjandi ef hún er birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og a.m.k. tveimur innlendum dagblöðum í hverju gistiaðildarríki.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 4. mgr. 99. gr. laga nr. 161/2002 um fjármála­fyrirtæki, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 17. nóvember 2008.

Björgvin G. Sigurðsson.

Jónína S. Lárusdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica