Velferðarráðuneyti

1207/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "520.000 kr." í 5. mgr. kemur: 600.000 kr.
  2. Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
    1. Í stað "123.897 kr." kemur: 128.357 kr.
    2. Í stað "171.711 kr." kemur: 177.893 kr.

2. gr.

Í stað "74.926 kr." í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 77.624 kr.

3. gr.

Í stað "171.711 kr." í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 177.893 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019 og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2019 eða síðar. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2015, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica