Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

1510/2022

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varan­legt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 137.632 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

 

2. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 83.233 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 190.747 kr. á mánuði.

 

3. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varan­legt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 143.963 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

 

4. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 87.062 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.

 

5. gr.

Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varan­legt fóstur frá og með 1. janúar 2023 eða síðar:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 152.025 kr. á mánuði.
  3. Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.

 

6. gr.

Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, til foreldra skulu vera sem hér segir vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2023 eða síðar:

  1. Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 91.937 kr. á mánuði.
  2. Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.

 

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1658/2021 um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2022.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Reglugerðir sem falla brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica