Velferðarráðuneyti

250/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga, nr. 945/2009.

1. gr.

6. gr. orðast svo:

Upphaf greiðslna.

Hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, getur fengið fyrirfram greitt meðlag eða önnur framfærsluframlög samkvæmt úrskurðinum frá Trygginga­stofnun ríkisins.

Meðlag skal greiða fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar. Upphaf greiðslna skal miðast við fyrsta dag næsta mánaðar eftir að umsókn og nauðsynleg gögn hafa borist Trygg­inga­stofnun skv. 5. gr. þessarar reglugerðar.

Óheimilt er að greiða meðlag ef meðlagsmóttakandi og meðlagsgreiðandi eru í hjúskap, óvígðri sambúð eða skráð með sama lögheimili.

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er Tryggingastofnun heimilt að hefja greiðslur frá þeirri dagsetningu sem kveðið er á um í meðlagsákvörðun í tengslum við slit á hjúskap eða óvígðri sambúð, enda þótt meðlagsmóttakandi og meðlagsgreiðandi séu skráðir með sama lögheimili á þeim tíma, sbr. þó 7. gr.

Ávallt er skilyrði að barn sé búsett á heimili meðlagsmóttakanda við upphaf greiðslna.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi og tekur til þeirra einstaklinga sem sækja um fyrirframgreiðslu meðlags hjá Trygginga­stofnun ríkisins frá og með 1. janúar 2012. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2011 um (1.) breyt­ingu á reglugerð nr. 945/2009, um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærslu­framlaga.

Velferðarráðuneytinu, 27. febrúar 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica