Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 14. mars 2012

1225/2011

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga, nr. 945/2009.

1. gr.

Við 6. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Óheimilt er að hefja greiðslur meðlags ef meðlagsmóttakandi og meðlagsgreiðandi eru í hjúskap, óvígðri sambúð eða eru skráð með sama lögheimili. Ennfremur er það skilyrði að barn sé búsett á heimili meðlagsmóttakanda við upphaf greiðslna.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2011.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.