Félags- og tryggingamálaráðuneyti

1014/2009

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2010. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félags­lega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2010:

  1. Í júlí 2010 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
  2. Í desember 2010 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2010. Jafnframt fellur úr gildi reglu­gerð nr. 1193/2008, um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2009.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 8. desember 2009.

Árni Páll Árnason.

Ágúst Þór Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica