Félagsmálaráðuneyti

1004/2003

Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa. - Brottfallin

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, skal vera 260.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr. laganna skal vera 416.000 kr.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, öðlast gildi 1. janúar 2004.


Félagsmálaráðuneytinu, 22. desember 2003.

Árni Magnússon.
Hermann Sæmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica