Laun og starfskjör

1042/2004

Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa. - Brottfallin

1. gr.

Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, skal vera 270.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr. laganna skal vera 432.000 kr.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, öðlast gildi 1. janúar 2005. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1004/2003, um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa.


Félagsmálaráðuneytinu, 17. desember 2004.

Árni Magnússon.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica