Félagsmálaráðuneyti

223/1986

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Höfðahreppi. - Brottfallin

Nr. 223

REGLUGERÐ

Um holræsi og holræsagjöld í Höfóahreppi.

 

1. gr.

Hreppsnefnd hefur ein heimild til þess að leggja holræsi á Skagaströnd.

 

2. gr.

Þar sem hreppsnefnd hefur látið leggja holræsi í götu, veg eða opið svæði, er hverjum húseiganda, sem á lóð þar að, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytji skólp þaðan út að aðalræsi. Einnig er húseiganda skylt að halda við heimæð sinni. Regnvatn of húsi eða 1óð skal, að svo miklu leyti sem unnt er, lent í húsræsið. Ef húseigandi vanrækir að leggja holræsi innan hæfilegs frests, sem hreppsnefnd tiltekur, skal verkið unnið á hans kostnað.

Greiða skal kr. 3200,00 í tengigjald.

 

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi, skal hann leggja fram uppdrátt of holræsalögn innanhúss og í grunni, er sýni legu, halla og stærð, gerð og annað því viðkomandi.

Aðeins pípulagningamanni eða öðrum, sem hreppsnefnd hefur samþykkt, skal heimilt að leggja holræsalagnir. Engar lagnir má hylja fyrr en byggingafulltrúi hefur samþykkt þær.

 

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast þær kröfur, sem gerðar eru í byggingasamþykkt, en auk þess getur hreppsnefnd sett reglur um holræsaefni, t. d. ef um nýjungar á því sviði er að ræða. Hreppsnefnd getur gert kröfur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi þar, sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, sterkan 1út, olíur, kvikasilfur eða önnur efni, sem geta valdið skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

Kostnaður við holræsagerð staðarins greiðist úr sveitarsjóði. Til þess að standast útgjöld þau, sem stafa af lagningu holræsanna, ber hverjum þeim sem hús á, 1óð eða lóðarréttindi við götu eða veg eða opið svæði, þar sem hreppurinn hefur lagt holræsi í, að greiða árlega til sveitarsjóðs gjald sem sé 0,10% of fasteignamati húss og lóðar, þó aldrei minna en kr. 1600,00 af húsi eða hluta of húsi, sem talinn er sér í fasteignamati, enda sé skólplögn eða viðkomandi húseign eða húshluta. Gjöld samkvæmt grein þessari er sveitar­stjórn heimilt að hækka eða lækka um 50%, án þess að samþykki ráðuneytisins komi til.

 

7. gr.

Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds.

Gjaldið hefur lögveðsrétt og er það tryggt með lögveði í Ióð og mannvirkjum lóðareiganda á henni næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Árlegur gjalddagi holræsagjalds er sá sami og fasteignaskatts.

 

8. gr.

Framantalin gjöld samkvæmt 2. og 6. grein eru miðuð við byggingavísitölu 229 stig 1. október 1985 og breytast einu sinni á ári til samræmis við byggingavísitöluna eins og hún er 1. október ár hvert.

 

 

 

9. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum allt að kr. 10000,00, sem renna í sveitarsjóð. Má1 út of brotum á reglugerð þessari skal fara með að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt of hreppsnefnd Höfðahrepps, staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum, nr.15 20.júní 1923, til að öðlast gildi þegar í stað. Fellur jafnframt úr gildi reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Höfðahreppi nr. 12 11. janúar 1974, með áorðnum breytingum með reglugerð nr. 205 19. maí 1978.

 

 

Félagsmálaráðuneytið, 4. apríl 1986.

 

F. h. r. Húnbogi Þorsteinsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica