Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

423/1998

Reglugerð um veðmálastarfsemi Hestamannafélagsins Sleipnis í Árnessýslu. - Brottfallin

1. gr.

Hestamannafélaginu Sleipni í Árnessýslu er heimilt að reka veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar er fram fara á vegum félagsins.

2. gr.

Veðmálastarfsemin fer þannig fram að veðjað er um hvaða hestur verði hlutskarpastur í hverjum flokki, svo og í úrslitahlaupum.

3. gr.

Veðfjárupphæðin má nema allt að kr. 5.000 og greiðist hestamannafélaginu gegn afhendingu veðmiða.

4. gr.

Veðfjárupphæðum hvers hlaups skal skipt þannig:

 a.            60% skal skipt hlutfallslega á þá upphæð sem veðjað hefur verið um á þann hest sem vinnur.

 b.            Afganginum (40%) skal varið til reksturs kappreiðanna, til viðhalds og umbóta á skeiðvelli félagsins og til reiðvega Árnessýslu. Framlag til reiðvega má aldrei vera minna en 10% af hagnaði félagsins af veðmálastarfseminni.

5. gr.

Að loknu hverju hlaupi skulu veðmálin reiknuð út, útkoman auglýst og vinningar greiddir út þegar í stað gegn framvísun veðmiða.

6. gr.

Engin upphæð verður endurgreidd af veðfé lögðu á hest, sem hleypur upp eða fer ekki af stað, og kemur af þeim eða öðrum ástæðum ekki til greina samkvæmt kappreiðareglum félagsins.

7. gr.

Ef hlaup verður ógilt í heild endurgreiðist veðfé að frádregnum 20%.

8. gr.

Vinningar greiðist í heilum tugum króna, þannig að vinningar hækki eða lækki í heilan tug samkvæmt almennum reglum.

9. gr.

Þeir sem veðja eru í einu og öllu háðir kappreiðareglum félagsins og úrskurði dómnefndar, t.d. missir hestur rétt til verðlauna er knapi hans er dæmdur úr leik o.s.frv.

10. gr.

Veðmiðar verða ekki innleystir síðar en 1 klst. eftir að móti lýkur, og því aðeins að þeir séu með læsilegum tölum.

11. gr.

Óheimilt er að leyfa unglingum innan 18 ára að veðja.

12. gr.

Halda skal nákvæma skrá yfir veðmálastarfsemina, svo sem inngreiddar og útgreiddar veðfjárhæðir og ráðstöfun tekna, og afhenda hana dóms- og kirkjumálaráðuneytinu innan 6 mánaða frá því að veðmálastarfsemi lýkur.

13. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 23 20. janúar 1945, öðlast þegar gildi og gildir til 1 árs.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 6. júlí 1998.

F. h. r.

Ólafur W. Stefánsson.

Fanney Óskarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica