Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

545/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 645/2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 að því er varðar orkumerkingar uppþvottavéla til heimilisnota og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 4z í kafla IV í II. viðauka og á eftir lið 11z í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar nr. 348/2021, frá 10. desember 2021, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. við­auka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ingsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/340 frá 17. desember 2020 um breytingu á framseldum reglugerðum (ESB) 2019/2013, (ESB) 2019/2014, (ESB) 2019/2015, (ESB) 2019/2016, (ESB) 2019/2017 og (ESB) 2019/2018 að því er varðar kröfur um orkumerkingar rafeindaskjáa, þvottavéla til heimilisnota og þvottavéla með þurrkara til heimilisnota, ljós­gjafa, kælitækja, uppþvottavéla til heimilisnota og kælitækja sem eru notuð við beina sölu.

 

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2021/340 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 10/2021, 16. febrúar 2022, bls. 816.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsinga­skyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 25. apríl 2022.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica