Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1289/2021

Reglugerð um (43.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/616 frá 13. apríl 2021 um breytingu á II., III. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir benalaxýl, benalaxýl-M, díklóbeníl, flúópíkólíð, prókínasíð og pýridalýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 198/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 69.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/618 frá 15. apríl 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir díklófóp, fluópýram, ipkónasól og terbútýlasín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 198/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 106.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/644 frá 15. apríl 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir flúxapýroxað, hýmexasól, metamítrón, penflúfen og spírótetramat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 198/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 123.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/663 frá 22. apríl 2021 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarks­gildi leifa fyrir klórdekón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 198/2021, frá 9. júlí 2021. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 143.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. nóvember 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica