456/2021
Reglugerð um (40.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/703 frá 26. maí 2020 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir dímetóat og ómetóat í eða á kirsuberjum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 319.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/749 frá 4. júní 2020 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir klórat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 337.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/770 frá 8. júní 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir mýklóbútaníl, naprópamíð og sintófen í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 351.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/785 frá 9. júní 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir krómafensóíð, flúómetúrón pensýkúrón, sedaxan, táfluvalínat og tríasoxíð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 375.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/856 frá 9. júní 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir sýantranilípról, sýasófamíð, sýpródiníl, fenpýroxímat, flúdíoxoníl, fluxpýroxað, imasalíl, ósófetamíð, kresoxímmetýl, lúfenúrón, mandí-própamíð, própamókarb, pýraklóstróbín, pýríófenón, pýriproxýfen og spínetóram í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 16/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 394.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1085 frá 23. júlí 2020 um breytingu á II. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir klórpýrifos og klórpýrifosmetýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 437.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. apríl 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.