Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1009/2018

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði við Austurland. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 17. nóvember 2018 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði við Austurland sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 65° 05,40´ N - 13° 21,00´ V
  2. 65° 05,40´ N - 13° 33,00´ V
  3. 64° 43,20´ N - 13° 53,40´ V
  4. 64° 43,20´ N - 13° 41,40´ V
  5. 65° 05,40´ N - 13° 21,00´ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. nóvember 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica