Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1198/2016

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012 um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Rækjuveiðar á Eldeyjarsvæðinu eru heimilar til og með 15. mars 2017. Heimilt er að flytja allt óveitt aflamark rækju á Eldeyjarsvæðinu frá árinu 2016 yfir á árið 2017 til og með 15. mars 2017. Frá og með 16. mars 2017 er einungis heimilt að flytja 5% af aflamarki rækju á Eldeyjarsvæðinu milli ára í samræmi við ákvæði 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1096/2016 um (15.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012 um rækjuveiðar innfjarða.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica