1. gr.
Reglugerð nr. 1068/2015, um ótímabundið bann við veiðum skipa með dregin veiðarfæri á svæði út af Aðalvík, fellur brott.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. júní 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Ásta Einarsdóttir.