Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1089/2013

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1064/2013 um bann við dragnótaveiðum fyrir Norðvesturlandi og út af Ströndum. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi málsliður í 2. tölulið 1. gr. reglugerðarinnar fellur brott:

"Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru veiðar heimilar að línu sem dregin er á milli 65°52´N og 19°42,8´V yfir Ingveldarhólma í Grafarós 65°53,4´N og 19°23,9´V til 31. desember 2010."

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica