Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

917/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 756/2012, um ráðstöfun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2012/2013. - Brottfallin

1. gr.

Í stað orðanna "500 lestum" í 1. mgr. 2. gr. kemur: 600 lestum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Hrefna Karlsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica