Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

810/2011

Reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða. - Brottfallin

1. gr.

Skylt er að hirða og landa öllum afla sem í veiðarfæri kemur. Þó er þeim aðilum sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar skv. sérstöku leyfi Fiskistofu, skylt að sleppa allri grásleppu, sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin.

2. gr.

Heimilt er að varpa fyrir borð verðlausum fiski, innyflum, hausum og öðru slíku sem fellur til við verkun og vinnslu afla um borð í veiðiskipum, en nýta skal hráefnið eins og nokkur kostur er.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. gilda eftirtalin skilyrði:

A.

Fyrir öll skip gildir:

Öllum skipum er skylt að hirða og koma með að landi öll þorsk- og ufsahrogn. Skylt er einnig öllum skipum að hirða og koma með að landi hausa og allan afskurð sem fellur til við vinnslu á makríl og íslenskri sumargotssíld. Komi afli í veiðarfæri fiskiskips sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt og sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks skipsins. Þessum afla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins, hann veginn og skráður sérstaklega. Afla þennan er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

 

B.

Fyrir önnur skip en þau er vinna afla um borð gildir:

Öðrum skipum en þeim er vinna afla um borð er skylt að koma með að landi alla þorsklifur sem fellur til við veiðar í lögsögu Íslands. Frá og með 1. febrúar 2012 er þeim einnig skylt að koma með að landi alla ufsa-, löngu-, keilu- og skötuselslifur sem til fellur við veiðar í lögsögu Íslands. Þó geta skip sem hafa aðgerðarvélar um borð sótt um undanþágu til Fiskistofu um að koma ekki með ufsalifur að landi. Heimilt er að veita slíka undanþágu einu sinni til sex mánaða.

 

C.

Fyrir skip sem vinna afla um borð gildir:

Frá og með 1. september 2011 er skipum sem vinna afla um borð í íslenskri lögsögu skylt að hirða og koma með að landi alla grálúðuhausa við veiðar í íslenskri lögsögu. Skipum sem vinna afla um borð er skylt frá og með 1. febrúar 2012 að hirða og koma með að landi að lágmarki 50% af allri þorsklifur og þorskhausa sem til fellur við veiðar í lögsögu Íslands. Frá og með 1. september 2012 er sömu skipum skylt að koma með alla þorsklifur og þorskhausa að landi, sem til fellur við veiðar í lögsögu Íslands. Heimilt er þessum skipum í stað hausa, að koma með samsvarandi magn af gellum, kinnum og/eða fésum að landi. Jafnframt er svo skylt að hirða og koma með að landi allan afskurð sem fellur til við snyrtingu á þorsk-, ýsu-, karfa- og ufsaflökum um borð í skipum sem vinna afla um borð og stunda veiðar í lögsögu Íslands.

 

D.

Fyrir skip sem stunda hrognkelsaveiðar gildir:

Við hrognkelsaveiðar skal koma með öll hrognkelsi að landi.



3. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum IV. kafla laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. gr. laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. september 2011 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 735, 19. júlí 2011, um nýtingu afla og aukaafurða.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 26. ágúst 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Jóhann Guðmundsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica