Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

330/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 810/2011 um nýtingu afla og aukaafurða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist bráðabirgðaákvæði svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 3. málsl., A stafliðar, 2. mgr., 2. gr. er skipum sem stunda makrílveiðar ekki skylt að koma með afskurð og hausa að landi á tímabilinu 7. júlí til 6. ágúst 2012.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. gr. laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni við nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. apríl 2012.

 

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica