Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

839/2011

Reglugerð um tímabundna friðun vegna rannsókna á hrygningarsvæði steinbíts á Látragrunni. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. september 2011, til og með 15. nóvember 2011, eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni sem markast af línum sem dregnar eru á milli eftir­greindra punkta:

  1. 65°25,34´N - 26°26,94´V
  2. 65°25,34´N - 26°24,53´V
  3. 65°17,00´N - 26°24,53´V
  4. 65°17,00´N - 26°26,94´V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. september 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica