Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1242/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1080, 28. desember 2010, um togveiðar á kolmunna 2011. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir 6. ml. 1. mgr. 9. gr. bætist við nýr málsliður sem orðist svo:

Þó skal draga frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. desember 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica