Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1/2012

Reglugerð um togveiðar á kolmunna 2012. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í fiskveiðilögsögu Íslands og í lögsögu þeirra landa, þar sem íslensk skip hafa rétt til að veiða samkvæmt samningum.

Fyrir tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:

A

B

C

Lestir

Lestir

Lestir

63.447

844

62.603


Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (1,33%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% yfir aflamark í kolmunna á árinu 2012 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2013. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2012 til ársins 2013.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 020°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 019°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 018°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 018°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 018°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 017°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 016°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 015°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 015°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 015°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 014°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 013°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 013°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 012°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 011°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 011°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 011°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 011°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 012°50,00´ V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar, sbr. reglugerð nr. 557/2007, með síðari breytingum, um afladagbækur. Þar skula m.a. koma fram upplýsingar um veiðisvæði, veiðitíma og afla í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,13.

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar Eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiðinefndarinnar, með síðari breytingum, og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan kolmunnaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram kolmunnaafli skipsins sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Færeyja.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn kolmunna. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til kolmunnaveiða vegna brota á reglugerð þessari.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. janúar 2012.

F. h. r.

Kristján Freyr Helgason.

Hrefna Karlsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica