Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

98/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 660/2011 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

1. tl. 1. mgr. 3. gr. breytist og orðast svo:

Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 46.783 lestir í efnahagslögsögu Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2012 og norðan við 64°30´N.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. febrúar 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica