Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

281/2011

Reglugerð um heimild færeyskra skipa til veiða á kolmunna við Ísland á árinu 2011. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi lýtur að framkvæmd samninga sem íslensk stjórnvöld hafa gert við færeysk stjórnvöld um heimildir færeyskra skipa til veiða á kolmunna í fiskveiðilandhelgi Íslands á árinu 2011.

Allar kolmunnaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu.

2. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90 N - 20°30,00 V
  2. 63°11,40 N - 19°07,30 V
  3. 63°07,50 N - 18°38,00 V
  4. 63°09,00 N - 18°27,00 V
  5. 63°07,00 N - 18°02,00 V
  6. 63°12,50 N - 17°00,00 V
  7. 63°20,00 N - 16°03,00 V
  8. 63°22,50 N - 15°51,00 V
  9. 63°26,00 N - 15°29,00 V
  10. 63°30,70 N - 15°00,00 V
  11. 63°33,60 N - 14°41,70 V
  12. 63°43,40 N - 13°53,00 V
  13. 64°00,00 N - 13°07,00 V
  14. 64°21,70 N - 12°17,30 V
  15. 64°32,30 N - 11°41,00 V
  16. 65°00,00 N - 11°28,00 V
  17. 65°27,00 N - 11°24,00 V
  18. 66°06,00 N - 11°33,00 V
  19. 66°42,00 N - 12°50,00 V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´ V.

3. gr.

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar sem uppfylla ákvæði um afladagbækur samkvæmt kafla III og viðauka IV í reglum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Staðfestar upplýsingar um landaðan afla einstakra skipa hvers mánaðar, sundurliðaðar eftir fisktegundum og löndunardögum, ásamt afritum úr afladagbókum, skal senda Fiskistofu eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót.

Veiðarfæri sem ætluð eru til annarra veiða en kolmunnaveiða, skulu geymd í sérstakri veiðarfærageymslu.

4. gr.

Aðeins er þeim færeyskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu innan íslenskrar lögsögu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn færeysku eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

5. gr.

Tilkynna skal Eftirlitsstöðinni siglingu skipsins inn í íslenska lögsögu með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara.

Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "komutilkynning" (Catch On Entry COE report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er í 1. mgr.

6. gr.

Skip sem stundar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands skal á hverjum degi á tímabilinu frá kl. 06.00 til 08.00 að íslenskum tíma, senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu þar sem eftirfarandi kemur fram í þessari röð:

Orðið "aflatilkynning" (Catch CAT report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.
Afli síðasta sólarhrings, miðað við kl. 24.00, eða afli frá því skipið kom inn í fiskveiðilandhelgi Íslands sé um skemmri tíma að ræða, sundurliðaður eftir tegundum.

7. gr.

Þegar skip lýkur veiðum í fiskveiðilandhelgi Íslands skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "lokatilkynning" (Catch On Exit COX report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.
Afli síðan síðasta aflatilkynning var send, sundurliðaður eftir tegundum.

8. gr.

Áður en skip heldur út úr fiskveiðilandhelgi Íslands skal senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu um það með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "athugunartilkynning" (Control report, CON).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr.

9. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 8. gr. er Eftirlitsstöðinni heimilt að ákveða önnur tímamörk en þar greinir þegar skip siglir inn í íslenska lögsögu og þegar það yfirgefur lögsöguna.

10. gr.

Eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar er í höndum Landhelgisgæslu Íslands, Fiskistofu og eftirlitsmanna í hennar þjónustu.

Fiskistofu er heimilt að setja veiðieftirlitsmenn um borð í veiðiskip sem leyfi hafa til veiða innan íslenskrar lögsögu. Skal útgerð skips sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð í veiðiskipi og ennfremur greiða allan kostnað af veru þeirra um borð í skipinu.

Telji Landhelgisgæslan eða Fiskistofa að eftirlit samkvæmt reglugerð þessari geti ekki farið fram á sjó, skal hlutaðeigandi skipi skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem eftirlit getur farið fram.

11. gr.

Fiskistofa getur svipt skip leyfi til veiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skipsins eða aðrir þeir er í þágu útgerðar starfa gegn lögum sem um hlutaðeigandi veiðar gilda, reglugerð þessari eða ákvæðum milliríkjasamninga.

12. gr.

Skip sem veiðileyfi hafa skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

13. gr.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

14. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. mars 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica