Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

970/2010

Reglugerð um bann við línuveiðum á Húnaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu frá og með 1. október til og með 31. maí, eru allar línuveiðar bannaðar á svæði í vestanverðum Húnaflóa, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 65°59,80´ N - 021°19,00´ V
2. 66°01,00´ N - 021°12,60´ V
3. 66°12,00´ N - 021°15,60´ V
4. 66°14,00´ N - 021°17,10´ V
5. 66°14,50´ N - 021°55,35´ V

Að vestan markast svæðið af fjöruborði meginlandsins.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi 16. desember 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. desember 2010.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica