Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1000/2010

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2010/2011. - Brottfallin

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2010/2011 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflaheimildum sem nema allt að 4.564 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðar­lögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 1.500, miðað við 1. desember 2009.

2. gr.

Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast á eftirgreindar botnfisktegundir, miðað við slægðan fisk, þannig: Þorskur 2.914 lestir, ýsa 910 lestir, ufsi 910 lestir og steinbítur 234 lestir. Skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.

3. gr.

Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 3.514 þorskígildislestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 1.200 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða samtölu 4. gr. B og C.

4. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 1.500. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2000/2001 að telja til fiskveiðiársins 2009/2010, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2009, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2000/2001 að telja til fiskveiðiársins 2010/2011, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2009, skal gefa tvo punkta.
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2000/2001 að telja til fiskveiðiársins 2009/2010, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2009, skal gefa fjóra punkta.

    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildislestir og að hámarki 300 þorskígildislestir. Þó skal fyrst ráðstafa 2.835 þorskígildislestum miðað við 150 þorskígildislesta hámark og síðan skal ráðstafa 529 þorskígildislestum til þeirra byggðarlaga sem rekast undir 150 þorskígildislesta hámarkið, í hlutfalli við punktafjölda hvers byggðarlags.
    Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfisk­vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiði­árið 2009/2010.
  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sam­kvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grund­vallar:
    Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2001/2002, 2002/2003, 2003/2004, 2004/2005, 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008 eða 2008/2009 að telja til fiskveiðiársins 2009/2010 koma aflaheimildir, sem nema 50 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 100 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 150 þorskígildislestir í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2001/2002, 2002/2003, 2003/2004, 2004/2005, 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008 eða 2008/2009 að telja til fisk­veiði­ársins 2009/2010 koma aflaheimildir, sem nema 50 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 100 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 150 þorsk­ígildislestir í þess hlut.
    Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags sam­kvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðar­lags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C-liðar.
  4. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að ofan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var afla­heimildum á fiskveiðiárinu 2009/2010, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2010/2011, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildislestir, milli fiskveiðiáranna 2009/2010 og 2010/2011.

5. gr.

Tilkynningar um aflaheimildir.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðar­lags sem undir þær falla.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 857 frá 5. nóvember 2010.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 17. desember 2010.

Jón Bjarnason.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica