Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

672/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 496/2010, um sérstaka úthlutun aflaheimilda í skötusel samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 22/2010, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við 4. gr. bætist ný málsgrein sem orðist svo:

Heimilt er að flytja 10% af aflaheimildum sem úthlutað hefur verið samkvæmt ákvæði I til bráðabirða í lögum nr. 22/2010, frá fiskveiðiárinu 2009/2010 yfir á fiskveiðiárið 2010/2011.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. ágúst 2010.

F. h. r.

Hrefna Gísladóttir.

Kristján F. Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica