Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

810/2009

Reglugerð um bann við línuveiðum á sunnanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. september 2009 eru allar línuveiðar bannaðar á svæði á sunnanverðum Breiðafirði, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1.

65°10,00' N - 23°24,00' V

2.

65°12,00' N - 23°10,00' V

3.

65°06,00' N - 23°12,00' V

4.

65°00,00' N - 23°11,00' V

5.

64°57,00' N - 23°29,00' V

6.

65°02,00' N - 23°30,00' V

7.

65°03,00' N - 23°24,00' V


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. september 2009.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica