Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

615/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 3, 6. janúar 2009, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2009. - Brottfallin

1. gr.

Lokamálsgrein 2. gr. orðist svo:

Allar veiðar sunnan við 64°30' N eru bannaðar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­land­helgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 14. júlí 2009.

F.h.r.
Hrefna Gísladóttir.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica