Sjávarútvegsráðuneyti

696/2005

Reglugerð um bann við kolmunnaveiðum við Þórsbanka án meðaflaskilju. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 26. júlí 2005 eru veiðar með kolmunnavörpu við Þórsbanka aðeins heimilar að varpan sé búin meðaflaskilju í samræmi við ákvæði reglugerðar frá 25. júlí 2005, um gerð og útbúnað meðaflaskilju við veiðar á uppsjávarfiski. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 65°00´00 N 10°20´00 V

2. 64°37´00 N 10°20´00 V

3. 64°37´00 N 09°50´00 V

4. 64°04´00 N 09°50´00 V

5. 64°04´00 N 11°04´00 V

6. 64°17´00 N 10°34´00 V

7. 64°37´00 N 10°51´00 V

8. 64°33´00 N 11°30´00 V

9. 64°10´00 N 12°09´00 V

10. 63°46´00 N 12°09´00 V

11. 63°26´00 N 11°55´00 V

12. 63°17´00 N 11°20´00 V

13. 63°07´00 N 12°29´00 V

14. 63°45´50 N 12°56´70 V

15. 63°53´44 N 13°25´00 V

16. 64°00´00 N 13°07´00 V

17. 64°21´70 N 12°17´30 V

18. 64°32´30 N 11°41´00 V

19. 65°00´00 N 11°28´00 V




2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi. Frá sama tíma eru felldar úr gildi reglugerð nr. 519, 27. maí 2005 um bann við kolmunnaveiðum vestan Þórsbanka með síðari breytingum, reglugerð nr. 606, 24. júní 2005, um bann við kolmunnaveiðum úti fyrir Austfjörðum og reglugerð nr. 657, 1. júlí 2005, um bann við kolmunnaveiðum austan Þórsbanka.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. júlí 2005.


F .h. r.

Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica