Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

981/2017

Reglugerð um (29.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/405 frá 8. mars 2017 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir súlfoxaflór í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 176.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/623 frá 30. mars 2017 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asekínósýl, amítras, kúmafos, díflúfeníkan, flúmekín, metríbúsín, permetrín, pýraklóstróbín og streptómýsín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 188.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/624 frá 30. mars 2017 um breytingu á II. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bífenasat, damínósíð og tólýlflúaníð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 217.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/626 frá 31. mars 2017 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asetamípríð, sýantranilípról, sýpermetrín, sýpródiníl, dífenókónasól, etefón, flúópýram, flútríafól, flúxapýroxað, imasapik, imasapýr, lambda-sýhalótrín, mesótríón, prófenófós, própíkónasól, pýrimetaníl, spírótetramat, tebúkónasól, tríasófos og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2017, frá 22. september 2017. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 601.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/627 frá 3. apríl 2017 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir fenpýroxímat, tríadímenól og tríadímefón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 237.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/671 frá 7. apríl 2017 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir klóþíanidín og þíametoxam í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 264.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/693 frá 7. apríl 2017 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bítertanól, klórmekvat og tebúfenpýrað í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES nefndar­innar nr. 182/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 279.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. nóvember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica