Brottfallnar reglugerðir

207/1998

Reglugerð um breytingu á reglugerð um atvinnuréttindi skipstjórnar- og vélstjórnarmanna nr. 118/1996. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um atvinnuréttindi skipstjórnar-

og vélstjórnarmanna nr. 118/1996.

1. gr.

                7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

                Atvinnuskírteini til skipstjórnar á skipum stærri en 30 rúmlestir skulu endurnýjuð til 5 ára í senn, ef umsækjandi uppfyllir skilyrði 1. gr. til að öðlast slíkt skírteini.

                Jafnframt skal umsækjandi sýna fram á siglingatíma að minnsta kosti í 1 ár á síðastliðnum 5 árum eða að hafa innt af hendi störf sem teljast sambærileg að mati ráðuneytisins eða hafa staðist viðurkennt próf eða lokið með fullnægjandi hætti viðurkenndu námskeiði eða hafa lokið viðurkenndum siglingatíma þar sem sinnt var starfi í lægri stöðu en upprunalegt skírteini segir til um, eigi skemur en í 3 mánuði.

                Enginn getur fengið endurnýjun atvinnuskírteinis til skipstjórnar nema sá sem fær er um að gegna starfinu af heilsufarsástæðum samkvæmt læknisvottorði, sbr. reglugerð nr. 304/1993.

2. gr.

                11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

                Atvinnuskírteini til vélstjórnar skulu endurnýjuð til 5 ára í senn, ef umsækjandi uppfyllir skilyrði 1. gr. til að öðlast slíkt skírteini.

                Jafnframt skal umsækjandi sýna fram á siglingatíma að minnsta kosti í 1 ár á síðastliðnum 5 árum eða að hafa innt af hendi störf sem teljast sambærileg að mati ráðuneytisins eða hafa staðist viðurkennt próf eða lokið með fullnægjandi hætti viðurkenndu námskeiði eða hafa lokið viðurkenndum siglingatíma þar sem sinnt var starfi í lægri stöðu en upprunalegt skírteini segir til um, eigi skemur en í 3 mánuði.

                Enginn getur fengið endurnýjun atvinnuskírteinis til vélstjórnar nema sá sem fær er um að gegna starfinu af heilsufarsástæðum samkvæmt læknisvottorði, sbr. reglugerð nr. 304/1993.

3. gr.

                Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984 með síðari breytingum og lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, nr. 113/1984 með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytinu, 27. mars 1998.

Halldór Blöndal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica