1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2014 frá 25. september 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/22/ESB um breytingu á IV. viðauka við tilskipun ráðsins 2006/88/EB að því er varðar blóðþorra.
2. gr.
Ofangreind tilskipun framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum.
4. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 303/2009 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1254/2008 um heilbrigðiskröfur vegna lagareldisdýra og afurða þeirra og um forvarnir og varnir gegn tilteknum sjúkdómum í lagardýrum, og reglugerð nr. 367/2013 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1254/2008 um heilbrigðiskröfur vegna lagareldisdýra og afurða þeirra og um forvarnir og varnir gegn tilteknum sjúkdómum í lagardýrum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. október 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)