Sjávarútvegsráðuneyti

674/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 365, 15. janúar 2002, um þorskfisknet. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Lágmarksmöskvastærð þorskfiskneta, sem heimilt er að nota til þorskfiskveiða, er 5½ þumlungur (139,7 mm).
Til 1. janúar 2005 er óheimilt að nota net til þorskfiskveiða sem er með stærri möskva en 9 þumlungar (228,6 mm).
Frá 1. janúar 2005 er óheimilt að nota net til þorskfiskveiða sem er með stærri möskva en 8 þumlungar (203,3 mm).


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. ágúst 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Guðríður M. Kristjánsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica