Viðskiptaráðuneyti

386/2009

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1781/2006 frá 15. nóvember 2006, um upplýsingar um greiðanda sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna. - Brottfallin

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 87/2007 frá 6. júlí 2007, gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1781/2006 frá 15. nóvember 2006, um upplýsingar um greiðanda sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna, að undanskildum ákvæðum 6. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af IX. viðauka við EES-samninginn um fjármálaþjónustu, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt á bls. 23 í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 60, 14. árgangi og EB-gerðin í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 11, 16. árgangi, bls. 180-191.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1781/2006 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 28. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006 og öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 3. apríl 2009.

Gylfi Magnússon.

Jónína S. Lárusdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica