Samgönguráðuneyti

390/2000

Hafnarreglugerð fyrir hafnir Fjarðabyggðar. - Brottfallin

390/2000

HAFNARREGLUGERÐ
fyrir hafnir Fjarðabyggðar.

I. KAFLI
Hafnirnar og stjórn þeirra.
1. gr.
Hafnirnar og takmörk þeirra.
1.1 Hafnir Fjarðabyggðar eru: Neskaupstaðarhöfn, Eskifjarðarhöfn og Reyðarfjarðarhöfn.
1.2 Neskaupstaðarhöfn tekur yfir Norðfjörð vestan línu sem hugsast dregin frá Uxavogstanga í Hellisfjarðarnes. Skiptist höfnin í ytri og innri höfn. Ytri höfnin tekur yfir svæðið frá ytri takmörkum hafnarinnar að fjarðarbotni. Í henni er hafnarlega og allt viðlegupláss meðfram strandlengjunni norðanverðri frá Neseyri að Vindheimi. Innri höfnin er allt hafnarsvæðið, viðlegupláss og smábátahöfn innan ytri takmarka sjóvarnargarða, er ganga í sjó fram úr fjarðarbotninum.
1.3 Eskifjarðarhöfn takmarkast af línu er hugsast dregin frá Hólmanestá yfir fjörðinn að vestanverðri Stekkseyri. Takmörk á landi eru frá Hólmanestá að Merkisteini. Á Hólmaströnd ræður stórstraumsflóðborð. Frá merkisteini að Bleiksá ræður sjávarbrún þjóðvegar. Frá Bleiksá að Mjóeyri ræður syðri brún Strandgötu. Frá innri Mjóeyrarvík að vestanverðri Stekkseyri ræður stórstraumsfjöruborð.
1.4 Reyðarfjarðarhöfn nær yfir Reyðarfjörð innanverðan, vestan línu sem hugsast dregin milli Hrútatanga sunnan í Hólmanesi norðan fjarðar í Hlaðhamar vestan ósa Eyrarár sunnan fjarðar. Takmörk á landi eru frá Hlaðhamri sunnan fjarðar að Norðurá fyrir fjarðarbotni og þar ræður stórstraumsflóðborð. Frá Norðurá ræður austurbrún Leiruvogar til norðurs að Nesbraut. Suðurbrún Nesbrautar til austurs að Búðargötu, vesturbrún Búðargötu að Strandgötu. Suðurbrún Strandgötu til austurs að enda hennar austan Búðarár. Þaðan bein lína framlengd að sjó í Oddnýjarhæðarvík, þaðan til norðurs að Austurvegi. Suðurbrún Austurvegar að Merkilæk. Þaðan ræður stórstraumsflóðborð að Hrútatanga norðan fjarðar að undanskilinni Mjóeyri við Sómastaðagerði, en eyrin öll að brekkurótum tilheyrir hafnarsvæði.
1.5 Landsvæði hafna Fjarðabyggðar skiptist í hafnarbakka, bryggjur, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði, götur, iðnaðar- og baksvæði.
1.6 Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur með höndum úthlutun lóða á hafnarsvæðum að fengnum tillögum hafnarnefndar.


2. gr.
Stjórn hafnanna.
2.1 Fjarðabyggð er eigandi hafnanna. Bæjarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytis, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarnefnd.
2.2 Hafnarnefnd skal skipuð fimm fulltrúum, sem bæjarstjórn kýs og jafnmörgum til vara. Kjörtímabil hafnarnefndar er hið sama og bæjarstjórnar.
2.3 Bæjarstjórn kýs formann og varaformann hafnarnefndar, en hún skiptir að öðru leyti með sér verkum.
2.4 Bæjarstjórn ræður hafnarstjóra að fenginni tillögu hafnarnefndar.
2.5 Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga bæjarstjóri og hafnarstjórar sæti í hafnarnefnd með málfrelsi og tillögurétt.


3. gr.
Hlutverk og valdsvið hafnarnefndar.
3.1 Hafnarnefnd er ábyrg fyrir fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnanna. Hún ákveður gjaldskrá í samræmi við ákvæði 8. gr. hafnalaga, gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð sem bæjarstjórn skal staðfesta. Hafnarnefnd skal leita staðfestingar bæjarstjórnar á lántökum og öðrum fjárhagsskuldbindingum til langs tíma.
3.2 Hafnarnefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um: Ráðningu fastra starfsmanna sbr. 5. gr., rekstur hafnanna svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ. m. t. leiga á húsnæði í eigu hafnanna og landi. Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðunum og hefur vald til að banna eða takmarka not hafnarsvæða fyrir starfsemi er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.
3.3 Bygginga- og skipulagsmál hafnanna, þ. á m. innkaup og verksamningar, skulu hljóta umfjöllun í hafnarnefnd áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn. Engin mannvirkjagerð má fara fram á hafnarsvæðunum nema með samþykki hafnarnefndar. Hafnarnefnd skal sjá um að sótt sé um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda, sem eru undanþegin ákvæðum um byggingarleyfi, sbr. skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997.


4. gr.
Hlutverk hafnarstjóra.
4.1 Næsti yfirmaður hafnarstjóra er bæjarstjóri. Hafnarstjórar fara með daglega stjórn hafnanna. Hafnarstjórar sjá um framkvæmd samþykkta hafnarnefndar og veita henni og bæjarstjóra upplýsingar um málefni hafnanna. Þeir sjá um að fjárhagsáætlunum sé fylgt. Hafnarstjórar eru yfirmenn annarra starfsmanna hafnanna.
4.2 Hafnarstjórar skulu vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarnefndar og bæjarstjórnar.
4.3 Hafnarstjórar sjá um að gætt sé reglu á höfnunum og á landi þeirra. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum þeirra eða annarra sem þeir fela slík störf.
5. gr.
Hlutverk hafnarvarðar.
5.1 Hafnarnefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um ráðningu hafnarvarða og annarra fastra starfsmanna hafnanna svo margra sem þurfa þykir. Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga í skamman tíma ræður hafnarstjóri.
5.2 Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eigum hafnanna, gæta reglu og sinna skipaþjónustu.
5.3 Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum hann órétti beittur af starfsmanni getur hann kært það til hafnarnefndar, en skipun starfsmanns ber að hlýða þegar í stað.



II. KAFLI
Umferð skipa.
6. gr.
Skilgreining á skipi.
6.1 Skip telst í þessari reglugerð sérhvert fljótandi far sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.



7. gr.
Almennar reglur við komu og brottför.
7.1 Við komu og brottför að degi til skulu skip önnur en íslensk fiskiskip hafa þjóðfána við hún.
7.2 Þjónusta við skip, svo sem vatnsafgreiðsla og tenging rafmagns er unnin af starfsmönnum hafnanna. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðin hafa opna talstöð á viðskiptabylgju viðkomandi hafnar.
7.3 Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarðar með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi með 1 klst. fyrirvara.
7.4 Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa skipaþjónustu eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á.
Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað.
Nafn skipstjóra.
Stærð áhafnar og fjölda farþega.
Tegund og magn farms.
Um hættulegan farm, tegund (tækniheiti og IMDG-flokkun) og magn.
Um hugsanlega sjúkdóma um borð.
Nafn umboðsmanns.
7.5 Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest, svo og sérreglna Siglingastofnunar Íslands. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.


8. gr.
Umferð um hafnirnar.
8.1 Skip sem kemur til hafnar skal leita upplýsinga hjá hafnarverði eða umboðsmanni hvar binda megi skipið við bryggju. Óheimilt er að binda skip annars staðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.
8.2 Skip mega ekki láta vélar ganga af svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi hætta af aðal- eða þverskrúfum.
8.3 Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa á skipum í höfninni.
8.4 Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.
8.5 Skemmti- og smábátar, þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu þegar skip eru að leggja að og frá viðlegu.



9. gr.
Skip í viðlegu.
9.1 Skip telst í viðlegu er það liggur við hafnarbakka, bryggju þ. m. t. utan á öðru skipi eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.
9.2 Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekning eru skip sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.
9.3 Ekki má binda skip við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal komið þannig fyrir að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt getur hann krafist þess að tafarlaust sé bætt úr því.
9.4 Þegar búið er að leggja skipi við bryggju má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra, en skipstjóra er skylt að flytja skipið ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip sem ekki er verið að lesta eða losa, eða eru ekki í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni að þau tálmi vinnu við önnur skip og er skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðar, eða dragist flutningur þess yfir þann tíma er hafnarstjóri hefur skipað, er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.
9.5 Í sérhverju skipi skal að jafnaði vera einn maður að minnsta kosti sem getur tekið á móti skipunum hafnarstarfsmanna og framkvæmt þær. Skal hann sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni er leiða kann af vanrækslu í þessu efni. Hafnarstjóra er heimilt að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá hafnarvörðum nöfn skipstjórnarmanna sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.
9.6 Hafnarverðir ákveða legur fyrir skip 12 bt. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn skal eigandi tilkynna það hafnarvörðum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.


10. gr.
Skip í lægi.
10.1 Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.
10.2 Skipum sem leggja skal í lægi má aðeins leggja á þeim stöðum er hafnarstjóri leyfir. Skipunum skal lagt undir umsjá hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við hann, enda liggi fyrir samþykki tryggingafélags skipsins. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði fara út í það til þess að líta eftir hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað og ef svo reynist skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er. Áður en skipstjóri fer af skipinu skal hann skriflega tilgreina siglingafróðan mann, sem búsettur er í Fjarðabyggð, og hafa skal umsjón með skipinu. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varða. Sér hann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því skal hafnarstjóri fullnægja þeim en skipseigandi greiði allan kostnað sem af því leiðir.


III. KAFLI
Afnot hafnarmannvirkja og landsvæða.
11. gr.
Lestun og losun almennt.
11.1 Afnot hafnarmannvirkja og lands eru öllum heimil, að fengnu leyfi hafnaryfirvalda, og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.
11.2 Hafnarnefnd ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.
11.3 Við lestun eða losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi af bílum, án eðlilegs hlífðarlags.
11.4 Hafnarstjóri getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Í sérstökum tilfellum er þó hafnarstjóra heimilt að veita undanþágur frá slíku.
11.5 Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu utan eigin leigusvæða án leyfis hafnaryfirvalda.
11.6 Þeir munir eða vörur sem skipað er upp, eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur eða muni, sem geymdir eru í óleyfi, burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.
11.7 Við lestun og/eða losun á vikri, sandi, kolum, mjöli og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka þannig að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt getur hafnarstjóri stöðvað verkið uns bætt hefur verið úr því sem áfátt er.
11.8 Þegar lokið er lestun og/eða losun skal sá er séð hefur um það láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka sem notuð hafa verið. Farist það fyrir skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem af því leiðir.


12. gr.
Meðferð eldfims og hættulegs varnings.
12.1 Skip, sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki leggjast að bryggju fyrr en leyfi hefur verið veitt til þess. Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningaskyldan nær til efna, sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code) flokkast í flokka 1, 2, 3, 4, og 5. Í tilkynningu skal greina tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: Púður, dýnamit, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalsiumkarbit, ammoníumnítrat og natríumklorat.
12.2 Losun á vöru, sem um ræðir í þessari grein, skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni. Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað af lestun eða losun eldfimrar vöru getur hann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.
12.3 Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun og losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðum. Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu, en í myrkri rautt ljósker. Í skipum, sem flytja eldfim efni, má ekki kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.


IV. KAFLI
Um hafnargjöld í Fjarðabyggð.
13. gr.
Um hafnargjöld.
13.1 Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 8. gr. hafnalaga.
Gjaldskrá er samgönguráðuneytið setur skv. 1. og 2. mgr. 8. gr. hafnalaga nr. 23/1994.
Þjónustugjaldskrá er hafnarnefnd setur og staðfest er af bæjarstjórn skv. 2. mgr. 13. gr. hafnalaga nr. 23/1994.


V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
14. gr.
Löggæsla á hafnarsvæðum, umferð og fleira.
14.1 Lögreglan í Fjarðabyggð hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðunum.
14.2 Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga er bannað að dvelja á landi hafnanna, ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Fólk, sem fer um hafnarsvæðin, er þar á eigin ábyrgð.
14.3 Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við hafnirnar eða á þeim. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðunum án leyfis. Á hafnarsvæði Reyðarfjarðarhafnar eru skotveiðar bannaðar vestan línu sem hugsast dregin frá Klöpp norðan fjarðar í Hrúteyri sunnan fjarðar.
14.4 Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðunum án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðunum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.
14.5 Hafnarstjóra skal þegar tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfninni, en hann gefur lögreglunni skýrslu um það.


15. gr.
Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.
15.1 Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal færa það burt svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki láta draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.
15.2 Ef skip, bátar, bryggjur, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.


16. gr.
Varnir gegn mengun og óþrifnaði.
16.1 Engum úrgangi eða rusli má henda í höfnina.
16.2 Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það, sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni, nema leyfi hafnarstjóra komi til.
16.3 Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora og/eða annað sem mengun veldur. Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn af þilfari verði óhapp, m. a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum. Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.


17. gr.
Beiðni og skilyrði fyrir þjónustu.
17.1 Allir þeir sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðila um aðstoð eða afgreiðslu sem er í vanskilum við höfnina.


18. gr.
Hverjum skal gefa fyrirmæli.
18.1 Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi né umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 9.5. Ef stýrimaður er fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt og skipstjóri hafi fengið skipunina sjálfur.


19. gr.
Um skaðabótaskyldu.
19.1 Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur má ákveða þær af tveim dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila um sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því að matsgerð lauk. Yfirmat skal framkvæmt af þrem dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist matsins ef það gengur honum ekki í vil.
19.2 Nú veldur skip skemmdum í höfninni, eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar, þá er óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur sbr. 32. gr. hafnalaga.


20. gr.
Brot, sektarákvæði og meðferð mála.
20.1 Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum, nema þyngri refsing liggi við, samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Fjarðabyggðar.
20.2. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 23/1994 með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi hafnarreglugerð fyrir Neskaupstaðarhöfn nr. 379/1985, hafnarreglugerð fyrir Eskifjarðarhöfn nr. 378/1985 og hafnarreglugerð fyrir Reyðarfjarðarhöfn nr. 477/1985.


Samgönguráðuneytinu, 16. maí 2000.

Sturla Böðvarsson.
Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica