Samgönguráðuneyti

293/1990

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, nr.121/1990. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda

þeirra, nr.121/1990.

1. gr.

10. tl. 7. gr. reglugerðar nr. 121/1990 orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélags Skagafjarðar, sem er Skagafjarðarsýsla og Sauðár­krókur. f lámarkstala er 20 vörubifreiðar.

 

2. gr.

16. tl. 7. gr. reglugerðar nr. 121/1990 orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélags Norðmýlinga, sem er Skeggjastaða- og Vopnafjarðar­hreppur í Norður-Múlasýslu. Hámarkstala er 10 vörubifreiðar.

 

3. gr.

20. tl. 7. gr. reglugerðar nr. 121/1990 orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélagsins Vémundar, sem er Berunes-, Búða-, Fáskrúðs­fjarðar-, Breiðdals- og Stöðvarhreppur, allir í Suður-Múlsýslu. Hámarkstala er 15 vörubif­reiðar.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 77/1989 um leigubifreiðar, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Samgönguráðuneytið, 26. júní 1990.

 

Steingrímur J. Sigfússon.

Helgi Jóhannesson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica