Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

322/2018

Reglugerð um (30.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/978 frá 9. júní 2017 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir flúópýram, hexaklórsýklóhexan (HCH), alfa-hverfur, hexaklórsýklóhexan (HCH), beta-hverfur, hexaklórsýklóhexan (HCH), summa hverfna, að undanskildum gamma-hverfum, lindan (hexaklórsýklóhexan (HCH), gamma-hverfur), nikótín og prófenófos í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 179.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/983 frá 9. júní 2017 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir trísýklasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 216.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1016 frá 14. júní 2017 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bensóvindíflúpýr, klórantranilípról, deltametrín, etófúmesat, haloxýfóp, vægt pepínómósaíkveirueinangur VC1, vægt pepínómósaíkveirueinangur VX1, oxaþíapíprólín, penþíópýrað, pýraklóstróbín, spírótetramat, sólblómaolíu, tólklófosmetýl og trínexapak í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 227.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1135 frá 23. júní 2017 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir dímetóat og ómetóat í eða á tilteknum vörum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 274.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1164 frá 22. júní 2017 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir akrínatrín, metalaxýl og þíabendasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 1. febrúar 2018, bls. 298.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. mars 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica