Fjármálaráðuneyti

272/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 709/2000, um tollmeðferð póstsendinga. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 13. gr. orðist svo:
Póststarfsmanni er heimilt, í viðurvist tollvarðar, að opna póstböggul sem kemur erlendis frá í því skyni að afla vörureiknings til að byggja á útreikning aðflutningsgjalda, sbr. 2. mgr. 33. gr. laga nr. 142/1996 um póstþjónustu, ef viðtakandi hefur gefið póstflytjanda skriflega heimild til þess. Um þagnarskyldu póststarfsmanna fer eftir lögum um póstþjónustu.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 107. gr. tollalaga nr. 55/1987, með síðari breytingum, og öðlast gildi þegar í stað.


Fjármálaráðuneytinu, 28. mars 2001.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Jóna Björk Guðnadóttir.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica