Velferðarráðuneyti

1211/2012

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2013 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu vera sem hér segir fyrir árið 2013:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. laganna skal nema 610.025 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 171.108 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna skal nema 171.108 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 25.175 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 7.288 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 18.948 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laganna skal vera 58.965 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. lög nr. 158/2007, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1228/2011, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2012 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingu.

Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica