I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Í reglugerð þessari er kveðið á um þau gjöld sem sjúkratryggðir skulu greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum og fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, auk gjalds fyrir sjúkraflutninga.
Þjónustuveitendum, sbr. 1. mgr., er óheimilt að innheimta hærri eða önnur gjöld af sjúkratryggðum en kveðið er á um í reglugerð þessari og fylgiskjali með henni.
Sjúkratryggingar Íslands skulu kynna almenningi efni þessarar reglugerðar.
2. gr.
Fagleg samskipti heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðilækna.
Í samræmi við markmið um að tryggja fagleg samskipti milli heilsugæslulækna, heimilislækna og sérfræðilækna er gert ráð fyrir því sem meginreglu í reglugerð þessari að samskipti sjúklings og læknis hefjist hjá heilsugæslu- eða heimilislækni.
Sjúklingur sem kemur til sérfræðilæknis fyrir milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal hafa meðferðis beiðni frá lækninum. Sérfræðilæknirinn skal ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklings, sbr. þó 4. mgr.
Komi sjúklingur til sérfræðilæknis án milligöngu heilsugæslu- eða heimilislæknis skal sérfræðilæknir ávallt senda heilsugæslu- eða heimilislækni sjúklingsins læknabréf. Komi sjúklingur til sérfræðilæknis fyrir milligöngu annars sérfræðilæknis skal síðari sérfræðilæknirinn ávallt senda læknabréf til heilsugæslu- eða heimilislæknis sjúklingsins og þess sérfræðilæknis sem hafði milligöngu um samskiptin, sbr. þó 4. mgr.
Sjúklingi er heimilt að óska þess við lækni að hann sendi ekki upplýsingar honum viðkomandi til annarra lækna. Þess skal þá getið í sjúkraskrá. Lækni er og skylt að útskýra fyrir sjúklingi ábyrgð þá sem þessu fylgir fyrir sjúklinginn sjálfan.
3. gr.
Hverjir eru sjúkratryggðir.
Sjúkratryggður er sá sem er búsettur á Íslandi og hefur verið það a.m.k. síðustu sex mánuðina áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um sjúkratryggingar, nema annað leiði af milliríkjasamningum, sbr. 10. gr. laga um sjúkratryggingar. Með búsetu er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga. Börn og unglingar yngri en 18 ára sem búsett eru hér á landi eru sjúkratryggð með foreldrum sínum. Sama á við um stjúpbörn og fósturbörn. Að öðru leyti gilda um það hverjir teljist sjúkratryggðir hér á landi 10.-16. gr. laga um sjúkratryggingar.
Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður.
II. KAFLI
Heilsugæsla.
4. gr.
Komugjöld á dagvinnutíma.
Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
Undanþegnar gjaldskyldu eru komur vegna mæðra- og ungbarnaverndar, heilsugæsla í skólum og unglingamóttaka í heilsugæslu sem veitir ráðgjöf og fræðslu um forvarnir. Með mæðra- og ungbarnavernd er átt við mæðra- og ungbarnavernd eins og hún er skilgreind í leiðbeiningum landlæknis um meðgönguvernd og um heilsuvernd barna (ung- og smábarnavernd).
Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.
5. gr.
Komugjöld utan dagvinnutíma.
Fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis utan dagvinnutíma, þ.e. milli kl. 16.00 og 08.00 og á laugardögum og helgidögum, skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
Hafi læknir sjálfur valið að sinna læknisstarfi utan dagvinnutíma skal greitt samkvæmt 4. gr.
Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar eða stofureksturs heimilislæknis.
6. gr.
Gjöld vegna vitjana lækna.
Fyrir vitjun læknis á dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
Fyrir vitjun læknis utan dagvinnutíma skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
Með vitjun samkvæmt þessari grein er átt við þjónustu læknis utan heilsugæslustöðvar.
Hafi læknir sjálfur valið að sinna vitjun utan dagvinnutíma skal greiða vitjanagjald dagvinnutíma skv. 1. mgr.
Vitjanagjald greiðist lækni og dregst frá samningsbundinni þóknun hans fyrir vitjanir.
7. gr.
Gjöld fyrir aðra þjónustu.
Sjúkratryggðir skulu greiða fyrir bólusetningar (hvern skammt) á heilsugæslustöð sem hér segir:
Gjöld skv. 1. mgr. skulu greiðast til viðbótar við komugjöld skv. 4. og 5. gr. Gjöldin skulu einnig greidd í heimahjúkrun. Ekkert gjald er greitt fyrir ungbarnavernd og heilsugæslu í skólum, sbr. 2. mgr. 4. gr. Í ungbarnavernd er ekki greitt gjald fyrir bólusetningar við stífkrampa, mænusótt, rauðum hundum og MMR (mislingar + hettusótt + rauðir hundar).
Auk komugjalda skv. 4. og 5. gr. skulu sjúkratryggðir, aðrir en börn yngri en 18 ára, greiða gjald fyrir aðra þjónustu en greinir í 1. mgr. sem hér segir:
Gjöld samkvæmt þessari grein renna til reksturs heilsugæslustöðvar.
8. gr.
Gjöld vegna krabbameinsleitar.
Vegna krabbameinsleitar á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum (legstrok og mynd af brjóstum) skal sjúkratryggður greiða kr. 3.400 fyrir hverja komu.
Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris greiða kr. 1.700.
Gjöld samkvæmt þessari grein renna til Krabbameinsfélags Íslands vegna úrlesturs frumusýna, röntgenmynda og leitarstarfs.
III. KAFLI
Sjúkrahús.
9. gr.
Komugjöld.
Fyrir komu og endurkomu á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:
Fyrir komu vegna innlagnar á sjúkrahús, þó ekki vegna innlagnar á fæðingardeild, skal sjúkratryggður greiða sem hér segir, þó ekki oftar en einu sinni í hverjum almanaksmánuði:
Fyrir komu og endurkomu á göngudeild sjúkrahúsa vegna þjónustu annarra en lækna skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:
Fyrir komu á dagdeild sjúkrahúsa, sbr. þó 12. gr. ef um ferliverk er að ræða, skal sjúkratryggður greiða sem hér segir, þó ekki oftar en fjórum sinnum í hverjum almanaksmánuði:
Sjúkratryggðir skulu, þrátt fyrir 3. mgr., taka þátt í kostnaði við iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og talþjálfun á sjúkrahúsum á sama hátt og þeir sem leita til þjálfara sem starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. reglugerð nr. 354/2005, um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í þjálfun, með síðari breytingum. Gjöld fyrir iðju-, sjúkra- og talþjálfun á sjúkrahúsum veita rétt til þjálfunarkorts frá Sjúkratryggingum Íslands.
Sjúkratryggðir skulu, þrátt fyrir 3. mgr., taka þátt í kostnaði við meðferð húðsjúkdóma veitta á sjúkrahúsi af öðrum en læknum á sama hátt og þeir sem leita til meðferðaraðila sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. reglugerð nr. 1260/2007 um styrki vegna kostnaðar við meðferð húðsjúkdóma, veitta af öðrum en læknum.
Aldraðir sem njóta þjónustu dagvistar í tengslum við sjúkrahús skulu, þrátt fyrir 4. mgr., taka þátt í kostnaði af dagvistinni skv. 19. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra og gildandi reglugerð um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum.
Gjöld fyrir þjónustu skv. VI. kafla greiðast til viðbótar við komugjöld skv. 1. mgr., þó skulu komugjald og gjöld skv. VI. kafla takmarkast við það hámarksgjald sjúkratryggðs sem tilgreint er í VI. kafla.
Gjöld samkvæmt þessari grein skulu renna til reksturs sjúkrahúss.
10. gr.
Gjald fyrir endurtengingu eggjaleiðara eftir ófrjósemisaðgerð.
Fyrir endurtengingu eggjaleiðara eftir ófrjósemisaðgerð skal sjúkratryggður greiða kr. 190.000.
Gjald samkvæmt þessari grein rennur til reksturs sjúkrahúss.
IV. KAFLI
Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.
11. gr.
Gjöld fyrir læknisvottorð í heilsugæslu og á sjúkrahúsum.
Fyrir læknisvottorð á eyðublöðum Tryggingastofnunar ríkisins vegna lífeyristrygginga eða bóta félagslegrar aðstoðar og á eyðublöðum Sjúkratrygginga Íslands vegna sjúkratrygginga eða slysatrygginga skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
Fyrir önnur læknisvottorð en tilgreind eru í 1. mgr. skal innheimta gjöld sem hér segir:
Gjöld fyrir vottorð samkvæmt þessari grein skulu renna til stofnunar.
V. KAFLI
Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu utan sjúkrahúsa
og á göngudeildum sjúkrahúsa.
12. gr.
Gjöld fyrir sérfræðilæknishjálp.
Fyrir hverja komu til sérfræðilæknis utan sjúkrahúsa og á göngudeild sjúkrahúsa, sbr. þó 10. og 13. gr., skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:
Sjúkratryggðir almennt skulu greiða kr. 7.300 fyrir keiluskurðaðgerðir. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris skulu greiða kr. 2.400 fyrir keiluskurðaðgerðir. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert gjald.
Með komu til sérfræðilæknis á göngudeild sjúkrahúsa skv. 1. mgr. er átt við ferliverk, þ.e. læknismeðferð sem unnt er að veita hvort sem er á læknastofum utan sjúkrahúsa eða á sjúkrahúsum og krefst ekki innlagnar á sjúkradeild nema í undantekningartilvikum. Sjúklingur greiðir gjald skv. 1. mgr. og gildir þá einu þótt næturdvöl kunni að reynast nauðsynleg í einstökum tilvikum.
Við komu skv. 1. tölul. 1. mgr. þar sem svæfingalæknir svæfir eða deyfir við aðgerð skurðlæknis skal sjúkratryggður greiða að hámarki kr. 25.000 í heild.
Þegar reikningur er gerður til Sjúkratrygginga Íslands fyrir sérfræðilæknishjálp skal draga greiðslu sjúkratryggðra frá umsömdu heildarverði. Ekki er gerður reikningur til Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðilæknisþjónustu (ferliverk) sem veitt er á sjúkrahúsum nema sérstaklega hafi verið um það samið skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.
Með umsömdu og ákveðnu heildarverði, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr., er átt við það gjald sem samið hefur verið um í samningum Sjúkratrygginga Íslands við sérfræðilækna skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar. Innifalinn í greiðslu sjúkratryggðra er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.
Gjöld vegna þjónustu á göngudeild sjúkrahúsa skulu renna til reksturs sjúkrahússins.
13. gr.
Gjöld vegna meðferðar og rannsókna við ófrjósemi.
Fyrir meðferð hjá IVF Iceland, tæknifrjóvgun, skal sjúkratryggður greiða sem hér segir:
1. |
Par sem ekki á barn saman: |
Glasafrjóvgun (IVF) |
Smásjárfrjóvgun (ICSI) |
||||
a. |
fyrsta meðferð |
kr. |
165.100 |
kr. |
197.500 |
||
b. |
önnur til fjórða meðferð |
kr. |
92.800 |
kr. |
112.000 |
||
c. |
fimmta meðferð eða fleiri |
kr. |
308.300 |
kr. |
376.700 |
||
2. |
Par sem á eitt barn saman: |
||||||
a. |
fyrsta til fjórða meðferð |
kr. |
243.800 |
kr. |
292.500 |
||
b. |
fimmta meðferð eða fleiri |
kr. |
308.300 |
kr. |
376.700 |
||
3. |
Par sem á fleiri börn saman: |
kr. |
308.300 |
kr. |
376.700 |
Inni í þessari greiðslu er kostnaður vegna nauðsynlegra rannsókna, heimsókna til sérfræðinga hjá IVF og lyfja, annarra en örvunarlyfja eggjastokka, en um greiðslu þeirra fer samkvæmt reglugerð um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði.
Greiðslur skulu skiptast þannig að í upphafi hverrar meðferðar skal greiða 20% af áætluðu heildargjaldi. Eftirstöðvar gjalds skal greiða þegar ákveðið hefur verið að framkvæma eggheimtu.
Fyrir aðrar rannsóknir sem ekki tengjast tæknifrjóvgunarmeðferð skulu greiðslur fara skv. 12. gr. og VI. kafla.
VI. KAFLI
Sameiginleg ákvæði fyrir þjónustu á heilsugæslu,
sjúkrahúsum og utan sjúkrahúsa.
14. gr.
Gjöld fyrir rannsóknir, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar.
Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknastofu, sbr. þó 10. og 13. gr., skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:
Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir, sbr. þó 16. gr.:
Sjúkratryggðir almennt skulu greiða kr. 7.100 fyrir kransæða- og hjartaþræðingu. Ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris skulu greiða kr. 2.400 fyrir kransæða- og hjartaþræðingu. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert gjald.
Þegar reikningur er gerður til Sjúkratrygginga Íslands fyrir rannsóknir, geisla- og myndgreiningu skal draga greiðslu sjúkratryggðra frá umsömdu heildarverði. Ekki er gerður reikningur til Sjúkratrygginga Íslands vegna rannsókna, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga sem gerðar eru í heilsugæslu og á sjúkrahúsum nema sérstaklega hafi verið um það samið skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.
Með umsömdu og ákveðnu heildarverði, sbr. 1. og 2. tölul. 2. mgr., er átt við það gjald sem samið hefur verið um í samningum Sjúkratrygginga Íslands við sérfræðilækna skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, eða verð sem tilgreint er í fylgiskjali I með þessari reglugerð. Innifalið í greiðslu sjúkratryggðra er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.
Gjöld vegna þjónustu á heilsugæslustöð og á sjúkrahúsum skulu renna til reksturs stofnananna.
VII. KAFLI
Afsláttarskírteini.
15. gr.
Réttur til afsláttarskírteinis.
Þegar sjúkratryggður einstaklingur á aldrinum 18-70 ára hefur greitt kr. 25.000 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, innlagna á sjúkrahús, koma á slysadeild, göngudeild, dagdeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, koma til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og til sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa, rannsókna á rannsóknastofum, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga skal hann eiga rétt á afsláttarskírteini.
Börn undir 18 ára aldri með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár skulu teljast einn einstaklingur. Þegar greiddar hafa verið á sama almanaksári kr. 8.100 vegna koma barna undir 18 ára aldri í sömu fjölskyldu til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa, vitjana lækna, rannsókna á rannsóknastofum, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga, eiga forsjármenn barnanna rétt á afsláttarskírteini vegna þeirra.
Þegar ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris, hafa greitt kr. 6.100 á sama almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjana lækna, innlagna á sjúkrahús, koma á slysadeild, göngudeild, dagdeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, koma til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og til sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa, rannsókna á rannsóknastofu, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga, skulu þeir eiga rétt á afsláttarskírteini.
Greiðslur samkvæmt 7. gr., 8. gr., 5., 6. og 7. mgr. 9. gr., 10. gr., 11. gr., 13. gr. og 19. gr. veita ekki rétt til afsláttarskírteinis samkvæmt þessari grein.
16. gr.
Gjöld þeirra sem eru með afsláttarskírteini.
Gegn framvísun kvittana fyrir greiðslur skv. 4.-6. gr., 1.-4. mgr. 9. gr., 12. og 14. gr. skulu Sjúkratryggingar Íslands afhenda sjúkratryggðum afsláttarskírteini skv. 15. gr., sem lækkar greiðslu vegna heilbrigðisþjónustu út almanaksárið. Kvittanir skulu auk nafns útgefanda bera með sér tegund þjónustu, fjárhæð, greiðsludag, nafn og kennitölu hins sjúkratryggða.
Hafi sjúkratryggður fengið afsláttarskírteini samkvæmt þessari grein skal hann greiða sem hér segir fyrir heilbrigðisþjónustu það sem eftir er almanaksársins:
Við komu skv. 7. tölul. 2. mgr. þar sem svæfingalæknir svæfir eða deyfir við aðgerð skurðlæknis skal sjúkratryggður greiða að hámarki kr. 25.000 í heild.
Heimilt er að ákveða að afsláttarskírteinishafar greiði sama vitjanagjald og aðrir en fái síðan mismuninn endurgreiddan gegnum sjúkratryggingar, gegn framvísun kvittunar læknis.
Gjöld sem greidd eru á heilsugæslustöð og sjúkrahúsi renna til reksturs stofnananna.
Vitjanagjald dregst frá samningsbundinni þóknun læknis fyrir vitjanir, sbr. og 6. gr.
VIII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
17. gr.
Sérreglur fyrir atvinnulausa.
Einstaklingur sem verið hefur samfellt atvinnulaus í sex mánuði eða lengur samkvæmt staðfestingu Vinnumálastofnunar á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris. Staðfestingu Vinnumálastofnunar skal endurnýja á þriggja mánaða fresti. Réttur til afsláttarskírteinis fer samkvæmt 1. mgr. 15. gr.
18. gr.
Sérreglur fyrir líffæragjafa.
Þeir sem gefa líffæri eða fyrirhugað er að gefi líffæri eru undanþegnir öllum gjöldum samkvæmt reglugerð þessari vegna rannsókna og/eða meðferðar sem er í beinum tengslum við brottnám líffæris eða fyrirhugað brottnám líffæris.
19. gr.
Gjald fyrir sjúkraflutninga.
Fyrir sjúkraflutning á sjúkrahús og frá sjúkrahúsi skulu sjúkratryggðir greiða kr. 4.700.
20. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, og 37. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, öðlast gildi 1. janúar 2009. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1265/2007 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðuneytinu, 29. desember 2008.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Vilborg Þ. Hauksdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)