Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti

1046/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 348/1976, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 11. gr., sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1118/2005, orðast svo:

Verð hlutamiða er 1.100 kr. í hverjum flokki. Fyrir ársmiða skal greiða 13.200 kr. Ef eigandi miða vill gera hann að ársmiða, eftir að drættir, einn eða fleiri, hafa farið fram, skal hann greiða fyrirfram fyrir þá drætti, sem eftir eru.

2. gr.

19. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Útdráttur vinninga fer fram sem hér segir:

I. Fyrri útdráttur vinninga í hverjum flokki happdrættisins fer fram með eftirfarandi hætti:

  1. Útdráttur hæstu vinninga í almenna hlutanum:
    Vinningsnúmer vegna hæstu vinninga í 1.-12. flokki eru dregin út með notkun fimm hólfa stokksins. Númerin skulu vera á bilinu 1-60.000. Tölur sem koma fram í hólfum stokksins mynda miðanúmerið. Lesið skal frá vinstri til hægri þegar horft er framan á stokkinn. Ef ekki reynist unnt að nýta fimm hólfa stokkinn við útdrátt hæstu vinninga er heimilt að nýta átta hólfa stokkinn í hans stað. Tölur sem koma fram í þeim fimm hólfum stokksins sem eru fjærst snúningshnúð mynda miðanúmerið. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Útdregið vinningsnúmer er því aðeins gilt að það sé á bilinu 1-60.000.
  2. Útdráttur annarra vinninga en hinna hæstu í almenna hlutanum fer fram með tvennum hætti:
    1. Með notkun tölvu:
      1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
      2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
      3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út önnur miðanúmer en þau sem hlotið hafa hæsta vinning.
      4. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
      5. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá.
    2. Með notkun stokks:
      Valdar eru tveggja stafa tölur. Valið fer fram með notkun fimm eða átta hólfa stokks og er sú tala, sem fram kemur og síðustu tveir stafir mynda, skráð. Þegar fimm hólfa stokkur er notaður skal lesið frá vinstri til hægri þegar horft er framan á stokkinn. Lesið skal frá þeim enda átta hólfa stokksins sem fjær er snúningshnúð. Val er endurtekið þar til tilskilinn fjöldi talna hefur fengist. Tölurnar verða hluti af vinningaskrá, en þær vísa til síðustu tveggja tölustafa í hverju miðanúmeri. Þau miðanúmer sem þannig er vísað til eru vinningsnúmer.
  3. Að þessum útdrætti loknum er prentuð út heildarvinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni.
    Sé óskað eftir afriti skrárinnar skal það nú gert.
    Dráttarforrit og annar hugbúnaður er tekinn til varðveislu af happdrættisráði.
    Happdrættisráðið færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttarins.

II. Síðari útdráttur vinninga í 1. - 11. flokki happdrættisins fer fram með tvennum hætti:

  1. Með notkun tölvu úr seldum miðanúmerum.
    1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
    2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
    3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
    4. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
    5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
    6. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá. Í hvert sinn sem trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur útdreginna einfaldra miðanúmera. Í útdrætti er mögulegt að fimm vinningar falli á sama trompmiðann.
  2. Með notkun tölvu úr öllum miðanúmerum.
    1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
    2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
    3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá allra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
    4. Skrá allra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
    5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
    6. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningakrá. Ef trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur einfaldra miðanúmera.
    7. Ef vinningur fellur á óseldan miða bætist vinningsupphæðin við vinningsupphæð í síðari útdrætti næsta mánaðar.

    Að þessum útdrætti loknum er prentuð út heildarvinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni.
    Sé óskað eftir afriti skrárinnar skal það nú gert.
    Dráttarforrit og annar hugbúnaður er tekinn til varðveislu af happdrættisráði.
    Happdrættisráð færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttarins.

III. Síðari útdráttur vinninga í 12. flokki fer fram með eftirfarandi hætti.

  1. Með notkun tölvu úr seldum miðanúmerum.
    1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
    2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
    3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður sem tekinn er undan innsigli og búnaðurinn settur í tölvuna. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
    4. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eða trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
    5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæð, eru settar inn í tölvuna og prentast jafnframt út.
    6. Tölvan dregur og prentar út skrá yfir vinninga. Í hvert sinn sem trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur útdreginna einfaldra miðanúmera. Í útdrætti er því mögulegt að fimm vinningar falli á sama trompmiðann.
  2. Sé óskað eftir afriti skrárinnar skal það nú gert.
    Dráttarforrit og annar hugbúnaður er tekinn til varðveislu af happdrættisráði.
    Happdrættisráð færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttarins.

3. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 5. gr. laga um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2011.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 22. desember 2010.

Ögmundur Jónasson.

Hjalti Zóphóníasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica